|
Ekkert mjög gamalt, en gott!
|
25.05.2008 17:18:31 / nandi
Þetta er hræðilegt!!  Ég er búin að vera á leiðinni í það að fara loksins að gera síðuna góða, ég komst alveg helling áfram með það á tímabili hérna í fyrrahaust! Er alltaf alveg að fara að vinna í þessu en tíminn hefur bara alveg hlaupið frá mér! ...núna er ég komin með fuuuuullt af nýjum myndum sem fer að verða tímabært á að fái aðp líta dagsins ljós! ...ég mun t.d. að öllum líkindum hafa nægan tíma til þess í sumar þar sem ég verð fyrir austan að vinna og láta mér leiðast....  Annars er þetta búin að vera nokkuð góður vetur, ég er núna að byrja í prófum á morgun og það þýðir að ég er búin með annað árið mitt í MA, semsagt hálfnuð í stúdentin, ég er á félagsfræðibraut... og ég er að verða stúdent í dönsku og stærðfræði.. SCORE! ...alveg klárlega leiðinlegustu áfangarnir mínir.... og úúúú, ég komst inn í fatahönnunaráfangan, sem er best!  Ég ákvað að leifa bara öllum gömlu góðu myndunum og minningunum að vera inná síðuni þó að ýmislegt hafi breyst hjá mér í vetur, svona af virðingu við fortíðina  Svo er kellan nottla orðin 18  ...enda búin að vera dugleg að nýta mér það  ...fór í sjallan á Palla síðustu helgi og í gær á Eurovision partý, mér finnst það klárlega vera toppurinn á tilveruni að dansa uppá sviði í sjallanum með svona glóstikks  ...fór líka á kaffi ak. á föstudaginn í góðra vina hóp sem var awesom, en samt sem áður spes, ég sá Maríu eiginlega ekkert allan tíman, Gunni sat einn útí horni og horfði á fólk, Alex var útí í sígó allan tíman, Atli var allan tíman á barnum og ég og Andri tættum upp dansgólfið  ...þetta var best! Annars er bara allt ljómandi gott að frétta og lífið leikur við mann  ...fyrir utan það nottla að Kristjana er farin á Húsavík  ..og Bubbi í sveitina... Andri er hinsvegar komin heim að sunnan, jeeei:þ ...Alex er samur við sig, alltaf sama yndið mitt, Sara er klárlega incrowd, nánast eina stelpan sem ég hef núna, og Heba sem ætlar að beila á mér í MA  ...Baldur er bara Baldur eins og alltaf, David ástin mín  ....Atli að vinna, erum meiraað segja farin að taka upp hrísgrjónagrauts kvöldin okkar aftur, en þau voru vikulegur viðburður hjá okkur í fyrra  ....ég hef ekkert séð jónu óralengi sem er hræðilegt, en hún á nú bara von á litla krílinu eftir rúmar 2 vikur  ..ég hef voðalega lítið séð Gunna undanfarið en hann var hress og sami góði Gunni þegar ég hitti hann um helgina:þ .....og ég er nottla bara ég held ég  Annars á ég að vera að læra undir félagsfræði próf svo ætli sé ekki best að fara að skella sér í það, en ég stefni á að fara að virkja bloggið mitt almenninilega núna aftur, ég þarf bara að muna aðgangin minn inn á photobucket og þá er þetta allt að verða klappað og klárt! Ég vona samt innilega að einhver nenni að lesa þetta allt  -Arndís
»
29.11.2007 19:39:51 / nandi
ATH! ...síðan er í vinnslu og
allsherjar uppfærslu!!!
»
14.09.2007 10:25:03 / nandi
Núnú, þegar ég kem fram klukkan hálf 7 í morgun, geim í allra síðasta vinnudaginn, þá sagði gamli bara að ég þyrfti ekkert að mæta í vinnu, þannig að ég er bara heima með sætu litlu bræður mína ...ætlaði sko geðveikt að ná að sofa meira þannig að ég fór upp með strákunum að kúra... það endaði þannig að klukkan hálf 8 var ég komin niðrí eldhús að baka pönnzur ...mhh, þær voru góðar og bleikar! ...já gott fólk, við bjuggum til bleikar pönnzur og dönsuðum um allt eldhús eins og brjálæðingar á meðan með Mika í botni ! Annars er það að fréttaaf þesu heimili að pápi birtist heim í hádeginu á þriðjudaginn með trrommusett og rafmagnsgítar með magnara...! ...hryðjuverkasamtökin hafa nefnilega tekið upp á því að fara að stunda tóskólann og er búnir a stofna hljómsveit.. þannig að það eru búnar að vera hljómsveitaæfingar í a.m.k. 2 klst. Á dag síðan þá!!! Allavega gott að vera búin með vinunna fyrir þetta sumarið... er búin að læra mikið... t.d. þá er ég margoft búin að komast að því að það er EKKI gott bragð að kítti! ...og svo margt annað... búin að fá mörg misgóð “nickname” í vinunni, ber þar að nefna “Ingi-ríður Rut” , “Gógó-stelpan” og “föndrarinn” ....Stofnaði líka félag ásamt Halldóru sem hefur veið mjög virkt að störfum í sumar, það kallast FMM ...sem stendur fyrir Félag Misheppnaðra Málara... fundir eru haldnir alla fimmtudaga í bíóinu á Reyðarfirði! Annars er þetta búið að vera mjög gott sumar, ekki hægt að segja annað... stefnan er tekin norður núna seinnipartinn, ef veður leyfir.. þá er maður bara “gone for good” ...skólinn byrjar á mánudaginn... eða það er formleg setning á sunnudaginn sem þýðir að skólastjórinn flytur sömu ræðu og hann hefur gert á hverju ári frá því að hann byrjaði, allir fá kaffi og búið! ...svo mæti ég rúmlega 10 á mánudaginn og fæ stundatöflu og læti ...og já, nottla ekki 100% farin... kem nú eitthvað heim í fríum ........samt furðulegt, ég er búin að hlakka til í margar vikur að fara norður, en núna hins vegar er ég orðin óróleg og mig lnagar einhverra hluta vegna bara að vera heima hjá mömmu og pabba ....fæ alltaf svona áður en ég fer þó mig langi að fara... bara sakna alltaf pabba og mömmu og tvíburanna alltaf svo mikið Sit núna bara hérna inní herberginu mínu núna, innikróuð að kössum og töskum og öllu mögulegu og ómögulegu... mér sýnist nú samt að ég sé ekki alveg að fara að koma þessu öllu með mér á Línu minni ...en það reddast, mamma kemur norður til mín með strákanna næstu helgi, hún tekur bara restina fyrir mig ...hún er einmitt að koma því Olga frænka er að fara að gifta sig! ...vááá, hvað ég held að það verði flott brúðkaup! En þangað til næst... sendið hlýja strauma að góðu veðri fyrir mig í dag  -Arndís 2 góðar frá því í sumar : ...sakna þín sæta mín :*
»
22.08.2007 19:51:26 / nandi
Daginn sem ég kynntist Línu litlu fórum við saman í roadtrip og ég er að segja ykkur að Lína mín er æði! ...Hún er svo sæt og við bara alveg bondum sko! ...Hún er best ...Allan tíman í roadtripinu okkar Hlustuðum við á góða tónlist og sungum með (uppáhaldslagið hennar er sko Running með NoDoubt ) ..við fórum í “bommsarabomm” og spjölluðum alveg helling ...Þetta blogg verður grænt fyrir Línu ...Þetta er Lína litla:
Það var bara næs á Húsavík um helgina ...ég og Lína vorum mættar um hálf 9... var bara tjillað um kvöldið með Óla sæta ...hitti Bubbu, Bubba, Jósep, Kristjönu, Kristínu, Andra... og fleira fólk ...Svaf frameftir á lau í fyrsta skipti i laaaaaaangan tíma, var svo að rúnta með Glógló mest allan daginn... ég og Óli fórum út að borða á Sölku á lau.... var bara næs sko ..Fórum svo bara að tjilla með fólki og fórum á Innvortis tónleika!!! ...þeir voru geggjaðir sko, eins og alltaf, dýrka þá!! ...svo var bara djammað fram eftir nóttu, tekin rólegan sunnudag í að kúra... Bubba og Kristjana kíktu á okkur og við pöntuðum sveittar pitsur og eyddum deginum í að horfa á sýnishorn... því við einfaldlega gátum ekki ákveðið mynd!!! ...keyrði svo heim og var komin um 11 Annars er eiginlega ekkert að gera sko ...er bara að vinna og rúnta með Línu... ég hlakka svoooo til að fara á ak þegar skólinn byrjar! ...það er ekki stening samt fyrr en eitthvað 16. sept ...úff, hvað ég hlakka til! ...sakna allra svo mikið :* En allavega þá eru komnar inn NÝJAR MYNDIR af helginni !!!   -Arndís
P.s. Kristjana, þú ert svo mikil baðmotta! P.p.s. ErlaG, búnað biðja baðkarið um andabrauð nýlega eða ? 
»
14.08.2007 22:52:46 / nandi
Jóna: ég ætla að fá 16”pizzu með skinku og
franskar Pizzukall: OG hvar áttu
heima? Jóna: *skelfingarsvipur* ég veit það
ekki! Pizzukall: Veistu það
ekki! Jóna: Arndís, hvar á ég
heim? Arndís: Hvernig í andsk. Á ég að vita
það.... Þiljuvellir eitthvað held
égJ
óna: uuuuu... Pizzukall:
uuuuuu.. Arndís:
Margeir! ...Hlauptu út og kíktu á númerið á
húsinu!Margeir: *sprett*
...35 Jóna:
jaaaá einmitt
það...
Pizzukall: HLÆÆÆÆÆ
*bípbípbíp*
JÁ
krakkar mínir... svona er það þegar allir eru of þunnir til að
panta pizzu á mánudeginum eftir versló... verð þó að segja að ég
var skást... enda sofnaði ég klukkan 2 í rúminu
mínu....
Annars
er ég alltof löt að þessu... margt á daga manns drifið... komnar
inn fullt af myndum
 à
Mærudagar
à
tjill..Glógló og
ég
à
Verzló-lau
à
Verzló-Sun.
à
Fiskidagurinn á
Dalvík
Endilega allir að tjékka á
myndunum
Annars
er maður búnað gera alltof mikið til að nenna að skrif það allt
hér... Verzló er búin... hún var ágæt... mér finnst verzló vera
svona ein af þessum helgum sem er aldrei jafn góð og maður býst
við... maður hlakkar of mikið til, þið fattið.... Þórdís kom
einmitt um verzló en fór dfrá mér á sunnudeginum... var búnað ætla
að vera framá
mánudag...
Var á
Dalvík um helgina... Ég og Óli Sigdór fórum... kíktum aðeins á
húsavík fyrst á föstudagskvöldinu... hitti Óla minn:* ...og Bubbu
cuz
...fórum svo inná Dallas og hittum lið... á laugardeginum vorum við
að rölta um og fundum Hjálmar elskunna óvænt niðrá bryggju... hann
stóð einn útí horni með ömmu sinni, með þvílíkan fýlusvip... gleymi
aldrei svipnum sem kom á hann þegar hann sá okkur... hann var eins
og 5 ára krakki á afmælinu sínu.. haha... þið vitið... hafið
kannski mörg séð gleði svipinn hans Hjálmars... mergfaldið hann með
svona 5
 ---Svo á Lau kom líka Óli Örn
minn:* ...Bubbi, Linda, JónaS... vááá sko.... fullt af
fólki
En
látum þetta gott heita... ætla í rúmið.. er með ljótt kvef sem ég
vill losna við... helvítis tjaldið á Dalvík ...verð að vera
hress því stefnan er tekin á Húsavík um helgina... ætla að gista
hjá Óla mínum og fara á innvortis tónleika, hlakka mikið til já...
hitta
fólkið
-Arndís
En já, heyriði... ég
gleymdi alveg að minnast á það að nú er hún Glógló mín farin frá
mér, veit ekki alveg hvað ég á af mér að gera... ´vantar svon
einhvern sem nennir að rúnta með mér með ljótu hálvitana í botni:/
....hennar er allaveg sáááááárt
saknað!
»
23.07.2007 22:01:27 / nandi
Jææææja,
kannski löngu komin tími á blogg eða... en svona til að bæta
upp fyrir bloggleysið, eða a.m.k. reyna það, þá setti ég
inn FULLT af NÝJUM
MYNDUM !!!!!!!
à
07.07.07–einhverfumyndir af mér og
glógló
à
Eistnaflug–þarf að segja
meira!
à
Ættarmót +
*stingiafpartý *-Myndir af ættarmótinu og svo
koma myndir úr partýi heima hjá Andrési eftir að ég og
Bubba frænka stungum af af ættarmótinu
Allavega...
ýmislegt nýtt á döfinni hérna.... ÉG ER KOMIN MEÐ
BÍLPRÓF  ...allir að óska mér til hamingju!!!
...fékk það á föstudaginn
Fór á ættarmót um helgina...
mjög gaman bara... ég og Bubba frænka stungum samt af á
laugardagskvöldið... okkur fannst bara einhvernveginn partý
með skemmtilegu fólki á akureyri meira heillandi heldur en
Hlöðuball með
JhonnyKing....
....Bubbi, kobbi og
Katla komu allavega að sækja okkur, strákarnir fóru líka að skoða
einhverja náttúrusundlaug... á meðan rann bíllinn á einhvern
furðulegan hátta sjálfur af stað... upp brekku.... í handbremsu...
við skiljum ennþá ekkert í því hvað
gerðist
---allavega gott partý
á eftir, takk fyrir kvöldið elskurnar, þið sem voruð
þarna:* ---------------og ekki má gleymað þakka öllu
yndislega skyldfólki mínu fyrir
ættarmótið
Svooooo helgina þar á undan
var Eistnaflug! ....get bara ekki lýst því hvað það var
gaman ...kynntist fullt af nýju skemmtilegu fólki....
héngslaðist mest Með Bubba um helgina... og Lindu, Arnari,
Alex... fuuuuuullt af fólki! 
....og vaaaá, Innvortis! ...Þeir voru bestir... ég get alveg sagt
það hér og nú, ekki það að það vita það flestir... ég tilbið þessa
gaura... ég hef í alvörunni aldrei þorað að tala við þá... ég stend
bara og stari á þá af sviðinu eins og í leiðslu..
vaaá! ---Svo
nottla without the balls, svartidauði, changer, momentum, missti af
darkness growes... svo voru góð þarna, æji, gellan í rauða kjólnum,
man ekki hvað þau hétu... og vá bara... fuuuuullt af góðum
hljómsveitum
NÆSTA
HELGI: stemmt er á feita
stemmmningu á mærudögum!!! ...hlakka bara mikið til!
....Óli minn:* ... Bubba... Bubbi... Linda? ....vaaaá...
allir! ...eða næstum, vantar tvíbura rauðkuna
mína
En allavega... sé ykkur á:
rúntinum, röltinu, sjoppuni, vinunni, fylleríi, bryggjunni,
tjaldi..... :*
-Arndís
»
19.06.2007 23:27:29 / nandi
»
04.06.2007 18:48:18 / nandi
Vaaaá hvað það var gaman á
húsavík, ekkert smá góð vika! ...vaaaá, ég er bara
ekki að komasr yfir það hvað það var
gaman!!!
Fór um 9
leytið á Laugardagdkveldið... fékk far með Óla ástinni, ömmu hans
og systrum, Örnu og Kötlu ...Fór þá aðeins heim með honum og
einhverjir af strákunum komu.. fór svo heim til Estherar og talaði
aðeins við Glógló og fékk mér að borða og ssvona ...kíkti svo
aftur út með Óla, á Rúntin með Árna, Sigurborgu og Rúnari... Rúnar
skaut mig í lrið með fkn loftbyssu og það var svoooooo vont!
..er ennþá með smá sár/marblett!!! ...fórum svo bara aðeins heim
til Óla að tjilla og svo á rúntin með Steina
Pétri
à
Fimmtudagurinn, þá var ég að passa
Önnu Mjöll allan dagin á meðan Esther og Hjalti fóru á akureyri
allan daginn... við ákváðum að nýta bara tækifærið og halda
heljarinnar stelpudag, ég Glógló og Anna ...Vorum með tónlist í
botni og dansandi út um allt hús, nágrannanna til mikillar
gleði ...svo fórum við niður í bæ og fórum á andapollinn að
gefa öndunum ...svo á meðan Glógló fór á æfingu sátu ég og
Anna í lystigarðinum að blása sápukúlur og fórum svo í rólurnar hjá
skólanum og svona... ýmislegt skemmtilegt ...svo fórum við í sund
eftir æfingu hjá Eygló og láum í pottunum... baaaara næs ....Svo
þegar við komum heim bakaði ég pits handa okkur í kveldmat, og
Benna litla sem var komin heim úr skólaferðalaginu
...Um kveldið fór ég svo heim til Óla og ég, hann og Bubba vorum
bara eitthvað að tjilla og svo kom Bubbi ...svo fóru þau og
ég og óli vorum bara að tjilla og spjalla og
svona
à
Föstudaginn var ég bara að læra fyrir
nátt113 prófið og svo seinnipartinn fóru ég og Glógló í
heitapottinn í svona 3 klst ea e-h ...ekkert smá gaman hjá
okkur, vorum með tónlist og kók og vorum bara að spjalla og
tjilla... sólbrunnum líka báðar svona þónokkuð...
rauðhærðar...
...Um kveldið fór ég svo heim til Óla og það voru nú einhverjir þar
fyrir, strákarnir og Bubba, þeir voru að grilla... svo var bara
nokkuð nett partý þar!!! ...ekkert smá gaman!!! ...Margir í
misjöfnu ástandi þarna, en það var bara betra ...Bubbi kom
líka ...fór svo heim að sofa klukkan að verða 6 þegar ég var
búin að dotta í einhvern tíma í sófanum með Óla og
Haffa
à
Laugardagurinn! ...sjitt hvað ég vildi
ekk vakna þegar stelpurnar komu og drógu mig á fætur klukkan 10!!!
...fékk mér að borða og svo löbbuðu ég og Glógló niður á bryggju og
fórum í siglinguna með öllum hinum í fjölskyldunni á skipinu sem
Hjalti er skipstjóri á ...úff, ég var sko ekki með ástand í
sjóinn sko ...og það skánaði sko ekkert þegar við komum af sjónum
og það var grillað handa öllum á bryggjunni og það angaði allt af
pylsu... e´g er nú slæm með kjötið fyrir en vá, mér langaði að æla!
...eníveis... horfðum á skemmtiatriðin og ég hitti Önnu með Andreu
og Pétri og Huld og svona ...svo fór ég í búðina að kaupa mér
nesti fyrir kvöldið, sat soldin tíma bara inná kaffistofunni þar
með Óla, sem var að vinna greyjið ...fór svo bara heim til
Estherar og var eitthvað að slétta á henni hárið og svona, fór svo
ísturtu og pakkaði niður einhverjum mat og hlýjum fötum og svona
...Svo fékk ég mér pitsu með Glógló, Önnu og Sonju ...húsið fullt
af fólki því að Hjalti bauð allri áhöfninni heim fyrir
sjómannakvöldverðinn... allir að tala um hvað ég og Glógló séum
alveg eins, frétti að fullt af fólki hefði ruglast á okkur niðrí
bæ ...en það er bara kúl
sko
SVO kom að því!!! ...ég fór heim til Óla og við pökkuðum niður
sængum og einhverju drasli fyrir hann og biðum eftir Steina
Pétri... svo brunuðum við, Ég, Óli, Steini og Rúnar í Ásbyrgi(ok,
ég viðurkenni að ég sofnaði á leiðiinni) ...og það voru eiginlega
allir komnir á undan okkur þar! ...svo við drifum okkur að henda
upp tjaldinu og drífa okkur í fjörið!!! ...vá hvað það var gaman!
...Skemmtilegasta útilega sem ég hef farið í! ...vá hvað það var
gaman ...vorum í kringum 30 krakkar og bara vaaá... hehe,
kvartaði víst hver einasta manneskja á svæðinu undan okkur... en
vaá, hvað það var gaman!!! ...fórum svo heim rétt eftir hádegi á
sunnudaginn ...Þá fór ég heim með Óla og lagði mig þar í friði,
hann var ennþá einn heima, ...vorum svo bara aðeins að tjilla þar
og svo fór ég heim til Estherar og fékk mér að borða og pakkaði
níður og talaði við Glógló aðeins og svo fór ég inn á ak aftur
...úff hvað mig langaði ekkert að fara ...þetta var svo góð ferð!
EN ANNARS ALLIR AÐ TJÉKKA Á
MYNDUNUM SEM ERU KOMNAR INN EFTIR VIKUNNA, 4 NÝJIR
MYNDADÁLKAR:
-Tjillmyndir af húsvík
30maí-3júní
-Sjómannadagshelgar
sigling
-Partý hjá Óla 1. júní
-Útilega í Ásbyrgi 2-3
júní
-Arndís
»
29.05.2007 19:29:35 / nandi
Ákvað að gera smá blogg um helgina ...ég
hef ekkert að gera, mér leiðist svoooo geðveikt
mikið!!!
En allavega, á Laugardaginn Kom Öddi frændi
aðeins til mín, ég fór svo með honum í Einarsstaði til afa og
Hjórdísar og varð eftir þar, sátum bara að spjalla og svona ...og
svo komu Pabbi og Tvíburarnir þangað   ...ohh, það
var svo ðislegt að hitta þá!!! ...þó að það hafi auðvitað vantað
mömmu ...fenum mjöööög góðan amt hjá
Hjördísi ....Tvíburarnir voru að brilera eins og venjulega þessar
elskur
.....à
Ef einhver getur sagt yndislegu
bræðrum mínum hvernig brýr eru byggðar þá væri það mjög vel þegið
því það virðist vera aðal umræðuefnið þessa daganna hjá
þeim
D:
Hafþór: Pabbi, hvort er brúin
sem við erum að keyra á byggð til Egilstaða eða til
Fellabæjar?
Pabbi: Ég bara veit það ekki Hafþó minn. Af hverju
skiiptir það máli?
Hafþór: Bara að
pæla
Haukur: ohhhh, Hafþór! ...þeir byrja
auðvitað bara í miðjunni *Haukur og Hafþó rífast um þetta í smá
stund*
Pabbi: Jaaaá sko... það er svona maður sko
sem syndir út í miðja ánna með einn stein og lætur hann
detta... svo syndir hann til baka og nær í annan og lætur
hann detta.. og svona koll af kolli þangað til það stendur
uppúr! *Haukur og Hafþór horfa á hann eins og hann
sé fáviti í smá stund og spurja svo
afa*
.....Þeir eru alveg mat... hahahaha, vá
hvað ég hló mikið... dýrka þessi
yndi
Svo gistum við semsagt eina nótt hjá afa og
Hjördísi ... Keyrðum þá í Borgarfjörðinn og fórum í sumarbústað til
Ásu og Daníelu... fórum með þeim í ferminguna hans Ásgeirs Jarls
frænda ...held einmitt að ég hafi ekki hitt hann síðan í
fermingunni minni, oog það er sko að verða laaangt síðan það
var!!!....Hitti líka einhverja ættingja, en
annars fannst mér VIRKILEGA léleg mæting hjá minni
fjölskyldu, og það var áberandi!!! ...það voru sko afgangar
og allt!!! ...Svo var bara næææs í sumar bústað... spiluðum
trivial og fórum í pottinn... sofnuðu allir mjög snemma
...Svo var bara brunað hingað í gær, kíktum aðeins á
Júlla&Gunnu og co. áður en við lögðum af stað ...bara
stuð á okkur í þessari ferð
sko!!! ...Lag ferðarinnar var klárlega : Freak
out- Jet Black Joe ...Vorum sko með það á repeat nánast
alla ferðina, bra flott lag.. allir að hlusta á
það!!! ......Er líka búin að setja inn NÝJAR
MYNDIR ..frá ferðinni ...endilega tjékkið á
þeim
En annars hef ég voða lítið að segja ykkur
...Fer til Húsavíkur á morgun, hlakka ekkert smá
til ....Sakna Knúts míns líka alltaf jafn
mikið
En annars er ég að sjálfsögðu hress
...Later
-Arndís
»
25.05.2007 21:28:13 / nandi
Góóóóóóóóóóóð
síðasta helgi ...bara alveg hreint brillíjant!!!

à
Byrjaði á Roadtrippi hjá mér og Þórdísi á fimttudaginn(í síðustu
viku) ...geðveikt Roadtrip... til Húsavíkur ...tókum smá rúnt
með Glógló sætu og svona... svo komu Mútta og pabbi og strákarnir
mínir:* ...Þórdís mín fór heim ...gisti með þeim hjá afa það
kveldið 
à
Föstudagurinn á vaknaði ég kl 9 og fór í sund með mömmu og
strákunum ...Var svo eitthvað heima hjá Estheri og vorum að græja
og elda fyrri veisluna sko ...ég og Glógló vorum að skera lauk
með sund- og sólgleraugu... við vorum svo fkn svalar... ég verð að
komast yfir allar þessar myndir(og þær sem við tókum í veislunni
daginn eftir, en það er allt annar handleggur )..Fékk loksins mitt
heitþráða tunfiskssalat ...Var bara tjillað um kveldið, og
endaði svo á að fara út um 11 leytið í eitthvað partý með
Hreiðari.. það var geðveikt! ...enduðum svo á Bauknum og
fórum heim eitthvað um 3
à
Ég þurfti svo að vakna kl 10 morguninn eftir og fara í sund með
mömmu, tvíburunum, Eygló og Önnu... það var bara fínt sko, vaknaði
sovna aðeins við það ...Svo var bara allt brjálað að gera hjá
mér og stelpunum að græja sig fyrir útskriftina og svona, fórum svo
í kirkjuna að sjá Estheri! ...og ég verð nú bara að koma því
á framfæri hvað hún var mikið æði!!!! ...Hún syngur eing og
engill!!! ..hún fékk líka alveg svaka fín verðlaun.. og hún
bara var svo rosalega falleg(eins og alltaf ) ...en vá, hún var
æði, þetta var bara algjörlega hennar
dagur!
...Svo um kvöldið var veislan og gekk mjög vel, góður matur og
svona ...ég og Eygló biðum sérstaklega uppi og tókum myndir til
að passa að við myndum örugglega fá köku ...Vorum svo hálft
kvöldið niðrí herbergi bara að kúra undir sæng og spjalla.... svo
um hálf 11 fór ég út með Benna og einhverjum vinum hans og vorum
eitthvað uppí Ostakarinu ...Svo kom Óli og Steini Pétur og ég var
bara með þeim eitthvað á rúntinum og Benni kíkti svo með okkur og
svo fóru Benni og Steini heim og ég og Óli vorum bara eitthvað á
krúsinu til svona 5
à
Svo á sunnudeginum var bara að kveðja og halda iná ak.... fór út að
borða með Huld, Erlu og Önnu, systrum mömmu, og Gústa hennar erlu
og Huldu, Agnesi og Andreu litlu sætu
....Svo er vikan
búin ð vera nokkuð góð og róleg sko
à
Knútur sæti kíkti til mín á þriðjudaginn og var hjá mér eina nótt
...En fyrir þá sem ekki vita er hann farinn ða vinna uppá
Kárahnjúkum..... úff, það var æði að hafa hann, sakna han ekkert
smá mikið
à
Svo er bara búin að vera góð vika sko ...læra pínu og dimmiering
hjá böðlunum okkar ...Tjill með Þórdísi sætustu minni:* ...Tala
við Óla í símann svona billjón klukkutíma á
dag
En jámm, svo var
fyrsta prófið mitt í morgun, Danska, held að það hafi bara
gengið vel sko
......Kem/fer
líklega ekki austur fyrr en eitthvað seint því ég var með
prófárekstra í spænsku og dönsku og þarf að taka sjúkrapróf í
Spænsku og get ekki fengið að taka það fyrr en í fyrsta lagi
8.júni.. jafnvel ekki fyrr en 11.....
....En ég er sko
ekki í neinu prófi frá 30. maí til 4. júni og þá ætla ég að
fara til Húsavíkur og vera hjá Estheri ....hanga með
Glógló sætu og Óla elskunni og bara, hafa það geðveikt
nææææs!!!   
.....Er svo
líklegast að fara á fermingu á Bifröst núna um helgina....
gott að fá fjölskylduna
Það var örugglega
eitthvað fleira sem ég ætlaði að segja ykkur en fyrst ég man
það ekki þá held ég að þetta sé bara orðið gott í bili
....Það eru svo kkomnar NÝJAR MYNDIR!! ...allir að tjékka...
1.maí + Bland !!!
-Arndís
»
15.05.2007 17:31:12 / nandi
Hæhæ
Nenni eiginlega ekki að blogga, ætlaði bara að segja að ég
er búin að vera að reyna að vinna í því að uppfæra síðuna mína,
hérna
Myndirnar eru núna allar flokkaðar eftir því hvaða ár þær eru
teknar, mér fannst það einfaldara
En allir að taka þátt í glænýrri og ferskri
skoðannakönnun
Og hvernig lýst ykkur svo á nýja lúkkið á síðunni?!
-Arndís
»
08.05.2007 09:27:55 / nandi
Ég æææætlaði að blogga í gær sko, en hafði
ekki tíma... en ég ætla samt að tileinka þetta blogg henni
Þórdísi sætu því hún var að fá bílprófið sitt í
gær
....við rúntuðum líka allam daginn frá því við vorum búnar í
skólanum um hálf 4 til um rúmlega 8 um kvöldið, ekkert smá gaman
hjá okkur
Bara búið að vera brjálað í skólanum núna
sko... stæ próf, spænsku ritgerð, lokaverkefni í jarðfræði,
frönsku próf... var svo einmitt í munnlegu prófi í spænsku
áðan, vaaaá, ég hélt ég mydni deyja sko, en ég reddaði þessu
alveg ...held ég ...en ég meina, hver í fjanadnum
veit líka hvernig á að segja vélstjóri á spænsku, ég bara
spyr!!!!
Gerði bara eiginlega ekki rassgat um
síðustu helgi... bara læra og kúra með simpson á tv-links...
kíkti aðeins á Þórdísi mína á
laugardagskveldið
En helgin þar á undan, þá var skoooo gaman
hjá okkur!!!!!   ...fórum í menningarferð
til rvk með skólanum... fórum á föstudeginum, allir að sofna
og drepast úr myglu ..fórum svo út að borða áPizzaHut þegar
við komum og svo kíktu ég og Þórdís e-h út á rúntin og aðeins
heim til Sólveigar með Sólveigu og Þórunni ...svo gátum
við eiginlega ekkert sofnað þegar við komum heim... svo að
klukkan 3 á föstudagskveli.. þá fóru Arndís og Þórdís út í
miðbæ Reykjavíkur, Á NÁTTFÖTUNUM og “röltum” niður í
10/11(þarna beint á móti Hressó ) og keyptum
afmælisköku handa Þórdísi(Hún átti afmæli þarna, 28. apríl)
og sátum svo til hálf 5 að borða hana og spjalla út í glugga
í MR 
.....Á laugardeginum fórum við í sund í
laugardagslauginni og festumst svo inni á bílaplaninu því
einhverReykjavíkurtussa á LandRover lagði fyrir þannig að við
vorum í umferðateppu.....inná bílaplani!!!! ....eníveis,
fórum svo í kringluna með Kristínu og Arna var líka þarna og
svo kom Halli að hitta okkur ...enduðum á að fara með honum
heim til Ægis, sem var btw einn heima, og borða kjúkling...
svo á endanum var þessu bara slegið upp í kæruleysi og haldið
pínulítið VIP partý... gjeeeðveikt gaman ...heyrði samt
að sumar mömmur hafi ekki verið sáttar þegar þær komu heim
,sorrí Ægir minn
....Sunnudagurinn var svo tekin í
ÚBER-myglaða heimferð
Jaaaaá, svo fyrir það tóku ég og Knútur
laaanga helgi heima hjá honum ...fórum á bíladellu
2007(don’t ask) ...og bara tjill sko... fórum með Sölva í
fjölskyldu- og húsdýragarðin á laugardeginum, o í kolaportið
að kaupa Candy-floss (þó að það hafi nottla aðalega verið
fyrir mig ) ...ég meina, það er
bleikt
....annars er bara allt í gúddí sko ...er
að byrja á prófum 25. maí og er búin 6. eða 8. júní og
kem/fer þá austur og byrja að
vinna....
Ennnnn im out!
-Arndís
p.s. Það eru komnar inn myndir af
menningarferðinni í “lífið í MA” ...eða, það fer eftir hvenar
þú lest bloggið hvort ég verð búin að setja þær inn og líka
ef að ég næ að setja þærr inn áður en ég á að mæta í tíma
eftir hálftíma ...allavega geðveikar myndir og allir
að tjékka þær ...þegar þær eru
komnar
»
17.04.2007 22:23:27 / nandi
Hvað segiði...
blogg... hvað er það... haaa ?
-Jæja, allavega,
þá helgina sem mamma og pabbi og strákarnir mínir komu var
mjög góð ...fórum á skauta og ýmislegt skemmtilegt... ég
endaði nú samt á djamminu á laugardeginum, froðudiskó á
Capone... bara gaman
-Helgina þar á
eftir komu JónaB, Ríkey, Stebbi Óli, Ingi og Marri í bæin...
þá var sko fjör... aftur skautar og læti! ...fórum á djamm en
bara Ingi og ég komumst inn á Capone, ákváðum samt að vera
smá stund... það var nú einu sinni fantasíukvöld ...gefins
áfengi og ýmislegt skemtilegt frá Durex oh stelpur að dansa á
súlum og búrum... algjör klikkun... enduðum á að fara bara
þegar lokaði, dönsuðum af okkur rassinn ...héldum svo
áfram heima hjá Ísmari með hinum til hálf 7, og Addi kom með
okkur
-Svo var nú bara
tekið tjill fram að páskafríi.... varð einmitt 17 ára, 28.
mars... jeii fyrir mér ...var fárveik á afmælisdaginn
og lá í rúminu allan daginn og út þá viku ...ég og Knútur
gistum hjá Ingunni og Garðari í 2 nætur því vistin lokaði,,
jaaaá hún lokaði og okkur var hent úr... hneyksli!!!! ....og
svo kom hann með mér heim um páskanna
-Nokkuð góðir
páskar einmitt... var reyndar eiginlega ekkert með vinunum...
en það var bara svo gott að vera heim hjá pabba og mömmu og
litlu strákunum mínum
...var einmitt
einhver 20°C hiti daginn eftir að við komu, svo það var bara
sund, sólbað, ís og læti ...löbbuðum líka út í páskahelli
ein daginn, ég og Knútur sko, þ.e. áður en það byrjaði að
snjóa ...Fórum í 2 fermingar á skírdag: ég, mamma, pabbi,
tvíburarnir og Knútur... það var fjör... miiiiiiikið af góðum
kökum já 
...Knútur minn
skrapp svo suður að hitta sýna fjölskyldu og kaupa sér
bíl.... annan... á föstudeginum.. algjör nauðsyn að eiga 3 að
sjálfsögðu ...einmitt það kvöld hitti ég stelpurnar
heim hjá Erlu Guðbjörgu... svo var farið á feitt ball á
Eskifirði með Outloud, ég fór yfir með Reyni, Freydísi,
Sævari og Ylfu, takk fyrir það:* ...byrjuðum í partý og þar
fann ég jónu, ríkey, marra og inga... og við fórum á ball...
öll nema marri, han kom síðar ...það var gjörsamlega
danasað af sér lappirnar, án gríns, ég gat ekk labbað daginn
eftir því ég var bólgin undir yljunum undan skónum mínum
...en ég hitti æðislega fólið mitt, sakna ykkar:* ...svo var
bara tjillað yfir teiknimyndum og étið páskaegg, restina af
fríinu... Hékk með örnu á mánudeginum og við bökuðum
ógleymanlegar kökur...
heahahahahahahaha  
-Svo var bara
skóli aftur, æðislegt að hitta alla aftur. Knút, Bekkinn
minn, önnu, Þórdísi.... þið skiljið, vitið, alla :*
....skólinn er svo bara samur við sig....
-Um helgina var
svo söngkeppni framheldsskólanna hérna á Akureyri ..það
var bara gaman! ...Sólveig kom, og strákrnir að austan, og
eitthvað af stelpunum... fullt af fólki!!!
....fór einmitt
niður í bæ á föstudaginn og kom heim klukkan 5!!! ...hitti
Elínborgu og rölti um með Soffíu, hitti Erlu G aðeins...
hitti strákanna mína að austan og fullt af Akureyringum.. Svo
vat söngvakeppnin á laugardeginum, fór með Önnu og við vorum
með Veró og Ástu og vinkonu þeirra sem ég man ekki hvað
heitir og Gyrði og Þórdísi minni og vinkonu hennar sem é veit
ekki hvað heitir ...svo fórum ég og Anna heim í nýtt
“outfit” og svo var haldið á klikkað ball!!! ...engin smá
stemming fyrir utan, hitti Stebba Óla minn... og Marra og
Andra af stöddanum... fullt af fólki!! ...Dansaði svo
eins og brjálæðingur allt kvöldið... með önnu, sólveig og
Þórunni og Freyja dansaði aðeins með okkur og JónaB líka...
Ársæll... Svo seinni hlutan af ballinu hittum við
norðfirðinga að dansa með og Jóa og Patta..
og Veró og co. ....bara fjör ...Þórdís
sást lítið einhverra hluta vegna 
-Svo er mest
lítið í gangi núna... ég er með kvef... svo eru ég og Knútur
að fara suður eftir skóla hjá mér á morgun, vá hvað það verðu
gaman ...Það er nottla frí á fimmtudaginn og við ákváðum að
ditcha bara föstudaginn og vera langa helgi fyrir sunnan
...Soffía, systir Knúts, hafið kannski séð hana í
hádegisfréttunum á stöð 2 um helgar, fræg kona... er einmitt
30 í dag, óskum henni til hamingju með það... erum að fara í
feita afmælisveislu á Hressó til hennar á Laugardagskvöldið

En látum þetta
gott heita í bili...
-Arndís
p.s. komnar inn
nýjar myndir af söngkepninni undr lífið í MA og búin að
skipta um myndir í um mig dálkinum ...þarf virkilega að
fara að uppfæra þessa síðu!
»
08.03.2007 16:25:19 / nandi
Jæjajæja... varð kannski aðeins æst yfir
öskudeginum... anywayss...
Ég og Knútur skruppum aðeins suður helgina eftir
öskudaginn... Tryggvi og Heiðrún sóttu okkur á flugvöllin og við
fóum í pool á sprtbar og svona ýmisleg og við gistum hjá þeim og
vorum með þeim allan laugardaginn og þau voru svo, svo indæl að
keyra okkur á selfoss:* ...Þar var Sölvi litli eitthvað veikur og
við reyndum aðeins að hugsa um hann greyið og grilluðum og svona,
íktum svo á rúntinn með Danna um kvöldið, og Bonna kíkti á okkur
með nýju gelluna og svo kíktum ivð í pottinn og endðum svo á að
rúnta með Kjarra langt fram á nótt og keyra hann í Hveragerði
...Á sunnudeginum vorum við svo mestallan daginn hjá “ömmu” og
“afa” á Laugardælum, vorum að skoða gamlar
fjölskyldumyndir... það var bara fyndið ...kíktum svo
aðeins á Kjarra í Hveragerði og við fórum í Eden í ísferð... komnar
inn fullt af nýjum myndum af því... tjékkit ...fórum svo aftur
til afa og ömmu í kynbótastöðina og kíktum á kálfanna og fórum
fengum okkur kaffi með 3 af frænsystkynum
Knúts ....Mánudagruinn var frekar erfiður, við fórum í
jarðarför til afa hans Knúts, það var mjög faleg athöfnin... hann
var orðin svo veikur greyið... Ég og Soffía, systir Knúts, vorum
samt að tala um það í erfidrykkjuni að þegar meðhjálparinn beygði
sig niður til að færa blómakransanna í endann... þá rak hann
rassinn svona framan í kirkjunna með þessa líka rosalega stóru og
fallegu saumsprettu á
rassinum....
Frí hjá mér í spænsku alla síðustu viku þvi Örn
Þór var veikur ...Lenti á fatamarkaði ...allar búðirnar voru a’
losa sig við afgangsvörur... bara flott og rándýr föt þarna á ódýru
verði.... keypti mér buxur, pils, peysu, skó og 3 boli á rúmlega
6000 kall... ekki slæmt... Blend og læti... ekki það aðmig beint
vaaaaanti föt... en... þið vitið hvernig þetta
er
Eygló(glógló) sæta kom til mín um síðustu helgi
...algjör gelluhelgi... og Knútur... byrjuðum að fara beint með
hana á fatamarkaðinn að velja handa henni fyrirfram afmælisgjöf
...Fórum á subway og svo fóru ég og Glógló á GettuBetur með Önnu og
fleirum... kíktum svo, ég, glógló og Kútzi í bíó á: “The Number 23”
...hún er bara góð, mæli mjög sterklega með
henni!!!...á laugardeginum fórum við á nýj opnaða
Nings í hádeginu... svo fóru ég og Glógló tvær einar í
sund... og svo röltum við niðrí bæ og fórum á Amor og sátum
þar yfir heitu súkkulaði að spjalla(nei ég veit, ég drekk
ekki kaffi) ...finkembdum svo miðbæin, glerártorg og
hagkaup... tek að fram að við löbbuðum!!! ...Svo kom Knútur
sæti að sækja okkur o við fórum að leigja spólur!!(mæli me
Sunnuhlíð= 1 ný og 2 gamlar á 600 ) ...Tókum rólegt
kvöld heim og fórum seint að sofa!!! ...svo fór Glógló á
sunnudaginn og ég og Knútur skruppum í ísferð í glerártorg
til Veró ...ég var líka búin að lofa því að koma á framfæri
að það er besti bragðarefurinn að fara í glerártorg og spurja
um Veróniku og fá Bragðaref! Hjá
henni  
Vikan er svo bara búin að líða nokkurn vegin eins
og hver önnu vika... er að byrja á “Da Vinci Lykillinn” og er að
hekla trefil.. semsagt brjálað að gera hjá mér í
ömmufílingnum ...en svona í alvöru þá er alveg brjálað að
gera í skólanum eins og
venjulega
Svo eru mamma og pabbi og strákarnir mínir að
koma um helgina  ...vá, ég er að deyja úr
spenningi!! ..tvíburarnir ætla að koma með fullt af teiknimyndum
handa mér... og ég ætla að vera algjör mömmu og pabba stelpa um
helgina og bara... vá.... ég er að farast úr
tilhlökkun!!!
-Arndís
»
21.02.2007 21:50:16 / nandi
Þetta er búin að vera góður dagur... góður
dagur!
Öskudagur... ég var skellibjalla í bláum
tjullkjól með bleika vængi og kórónu ...í fyrsta tíma eftir
útifrí var söngsalur og slegið köttinn úr tununni og búningakeppni
og læti ...Teitur fékk fyrir frumlegasta búningin, hann var
greinilega búin að hafa mikið fyrir að föndra hann sjálfur ...svo
voru bekkjakeppnir, meðal skrautlegustu bekkja voru t.d.:ghost
busters, berlínarmúrinn, Adolf Hitler með júðanna sína, kindur
o.m.fl.  ...Svo
vorum við í tvöföldum hádegismat og ég, Veró(kanína),
SunnaD(kanína), Hildur(kanína), Kristín(bóndi), Tinna(kanína) og
Ása(hawain-style) fórum niður í bæ að syngja  
...við fengum FULLT af nammi!!! ...það var ekkert smá gaman, ég er
ekki frá því að þetta hafi verið einn skemmtilegasti öskudagur sem
ég hef upplifað!!! ...við fórum meira að segja í Aksjón að
syngja í sjónvarpinu, hehe, sá einhver það, stelpur ??
...
Talaði líka við tvíburanna áðan ...Þeir
voru sko bionicle-kallar, ekkert smá flottir!!! ...Þeir vou
alveg hiber af öllu namminu og alveg í skýjunum yfir að hafa fengið
einhverja draco-kalla... var einmitt að segja þeim frá heppilegustu
stöðunum til að fela nammið fyrir mömmu...
heeehh
Hildur tók svo fáeinar myndir af okkur við
sönginn sem koma vonandi inn bráðar ef hún man eftir að setja þær
inn svo ég geti stolið þeim ...haa, Hildur
??
Er annars voða lítið að frétta svosem... Jóna mín
er komin aftur norður, fórum á kaffihús og movie á sunnudaginn...
búðir á mánudaginn... stuuuuð
Annars er ég voða mikið í að hekla suma daga...
sumum ákveðnum manneskjum finnst eitthvað athugavert við það
*hóst*Anna*hóst*Jóna*hóst* ...fleiri sem vilja tjá sig eeeða ?!
...ætla að gera mér veski, trefil, húfu... dunda mér við
afmælisgjafir...
jólagjafir...
Svo á morgun kemur ME í æfingaleik við MA fyrir
GettuBetur ...ætla einhverjir að mæta sem ég vill hitta ??
...Ríkey? ...Mæja? ...Dísa? ...Stebbi?
..anyone?
-Arndís
»
Síður: 1 2 3 4
|
|